Flokkar
- Auglýsingar (12)
- Dreifikerfi (12)
- Facebook (10)
- Fjölmiðlar (15)
- Fyrirtækjaþjónusta (3)
- Góðgerðamál (4)
- Leikir og vinningar (32)
- Markaðsmál (135)
- Netið í símann (129)
- Símtæki og annar búnaður (77)
- Starfsmannamál (6)
- Tæknimál (12)
- Verðbreytingar (4)
- Viðburðir (31)
- Þjónusta og verslanir (102)
Sarpur
- janúar 2012 (15)
- desember 2011 (20)
- nóvember 2011 (20)
- október 2011 (16)
- september 2011 (17)
- ágúst 2011 (18)
Nýjustu ummælin
Íris Hrund
Hópstjóri
Smart símtól!
27. janúar, 2012
Stjörnurnar í Hollywood hafa sést á gangi með flott símtól tengd við farsímann sinn. Um er að ræða Native Union POP símtól, en þau getur þú meðal annars tengt við farsímann þinn og tölvuna. Tengt við tölvuna ásamt Netsíma Nova þjónar símtólið tilgangi borðsíma. Þú færð POP símtólin næstu verslun Nova á 6.990 kr., en þú getur líka fengið ódýrari útgáfu í Dótabúð Nova á 2.990 kr. Símtólin koma í fallegum litum, s.s. fjólubláum, bláum og lime grænum.
Skyldu eftir athugasemd við færsluna og þú gætir unnið símtól


Markaðsmál, Netið í símann, Þjónusta og verslanir
Olgeir
Hópstjóri
iPhone námskeið Nova á fimmtudögum!
25. janúar, 2012
iPhone námskeið Nova hafa hlotið góðar móttökur og gríðarlega góð mæting hefur verið á námskeið í upphafi árs. Við erum hvergi hætt og verðum áfram með námskeið á fimmtudögum kl. 12 og 17. Á iPhone námskeið fer ég yfir grunnvirkni iPhone símans, hvernig þú gerir hann að þínum og nokkur skemmtileg forrit. Námskeið fer fram í Nova Lágmúla, er klukkustund og það eru allir velkomnir. Námskeiðið er þar að auki frítt og þú skráir þig á iphone@nova.is
Sjáumst hress!

Hjörtur
Innkaupastjóri
Einn góður frá Nokia
25. janúar, 2012
Nokia Asha 300 er nettur 3G sími sem er hvort tveggja með snertiskjá og takkaborð. Fullkominn fyrir þá sem kunna vel við takkaborðið en langar að prófa snertiskjá. Þú getur auðveldlega gert Nokia Asha 300 að þínum; getur aðlagað skjámynd símans að þínum þörfum og sett flýtivísa eins og þér hentar. Asha 300 er með 1GHz örgjörva sem gerir þér auðvelt að vera á netinu í honum. Þar að auki er er Nokia Asha 300 með góða 5MP myndavél og í Nokia Store hefur þú aðgang að ýmsum öppum.
Nokia Asha 300 kostar 22.990 kr. stgr. eða 2.090 kr. á mán. í 12. mánuði. Síminn kemur í rauðu og svörtu.
Smelltu á myndina til að sjá myndband um Nokia Asha 300
Markaðsmál, Símtæki og annar búnaður, Þjónusta og verslanir
Guðný
Yfirmaður þjónustuvers og verslana
Verslun Nova á Selfossi á nýjum stað
24. janúar, 2012
Verslun Nova á Selfossi hefur verið færð um set og er nú í Filmverk (Miðgarði). Við bjóðum þig velkomin(n) á nýja staðinn og erum með flott opnunartilboð. Í janúar færð þú 2.000 kr. símnotkun í 12 mánuði með hinum magnaða Samsung Galaxy S II ásamt tveggja mánaða aðgang að SkjáEinum á netinu. Þá fylgir 1000 kr. inneign í 12 mánuði með Nokia X3-02, frábærum síma sem er hvort tveggja með takkaborð og snertiskjá og kemur í mörgum litum. Kíktu endilega á okkur.
Hlökkum til að sjá þig!
Markaðsmál, Netið í símann, Símtæki og annar búnaður
Hjörtur
Innkaupastjóri
Þorratilboð á pungum!
20. janúar, 2012
Vertu þjóðleg(ur) á þorranum með Nova pung. Þú færð dýrindis 3G pung hjá Nova á 6.990 kr. og honum fylgir girnilegur þorrabakki á veitingastaðnum Fljótt og gott. Einnig fylgir þorrabakki með 3G internetþjónustu fyrir iPad.
Viðskiptavinir Nova fá þar að auki 2 fyrir 1 af þorrahlaðborði alla virka daga hjá Fljótt og Gott BSÍ á þorranum. Þú nærð í tilboðið á m.nova.is í farsímanum þínum. Þegar þú nærð í tilboðið færðu sent SMS skeyti sem þú sýnir þegar þú nýtir tilboðið.

Erla
Markaðsfulltrúi
Búðu til segla úr myndunum þínum
18. janúar, 2012
Stickygram.com er skemmtileg síða sem gerir þér mögulegt að breyta Instagram myndunum þínum í segla. Sértu ekki með Instagram í iPhone farsímanum þínum þá er tilvalið að ná í appið í App Store, en með því getur þú tekið myndir og unnið þær á einfaldan hátt.
Til að breyta myndunum þínum í segla á Stickygram velur þú hnappinn „Get started“ á forsíðunni. Þá ertu beðin(n) um að slá inn notendanafnið þitt og lykilorð á Instagram. Við það tengist Stickygram Instagram reikningnum þínum og í kjölfarið birtast allar Instagram myndirnar þína á síðunni. Næst velur þú níu myndir til að breyta í segla. Þegar því er lokið setur þú seglana í körfu og greiðir. Þú getur greitt með PayPal eða kreditkorti og 9 seglar kosta $14.99. Ekkert sendingargjald.
Jóhann Valur
Plötusnúður
Áfram Ísland!
17. janúar, 2012
Nú er allt að verða vitlaust í handboltanum! Fyrir sanna handboltaunnendur þá er hægt að ná í appið „Handbolti“ fyrir iPhone og Android farsíma til að fylgjast með öllu því helsta. Í appinu getur þú skoðað handboltafréttir, úrslit og stöðuna. Þar að auki getur þú deilt áhugaverðum fréttum með vinum þínum á Facebook og Twitter. Þú nærð í handbolta appið fyrir iPhone í App Store og fyrir Android farsíma í Android Market.


Áfram Ísland!
Halla
Markaðsfulltrúi
2 fyrir 1 á Tapas barnum!
16. janúar, 2012
Í janúar fá viðskiptavinir Nova 2 fyrir 1 af Tapas plöttum á Tapas barnum. Óvissuferð, Tapas nautabanans og De la huerta eru meðal rétta sem falla undir Tapas platta. Þú munt njóta þess að borða þennan góða mat á Tapas barnum í hlýlegu, spænsku umhverfi. Tilboðið gildir sun-fim og þú getur pantað borð í síma 551 2344.
Til að nýta þér tilboðið þá ferð þú á m.nova.is í farsímanum þínum og smellir á auglýsingaborðann efst á síðunni eða ferð í dálkinn Nova SMS tilboð (fyrir miðri síðu). Næst velur þú þér tilboðið á Tapas barnum og við sendum þér það sem SMS í farsímann þinn. Skeytið sýnir þú þegar þú nýtir tilboðið. Skoðaðu líka hin SMS tilboðin, 2 fyrir 1 í bíó og 2 fyrir 1 í sushi.


Skoðaðu heimasíðu Tapas barsins
Þeir sem skilja eftir athugasemd við þessa færslu geta unnið gjafabréf á Tapas barnum!
Olgeir
Hópstjóri
iPhone námskeið hjá Nova!
13. janúar, 2012
iPhone námskeiðum Nova hefur verið afar vel tekið og ef þú átt eftir að koma þá er um að gera að kíkja. Þriðjudaginn 17. janúar, miðvikudaginn 18. janúar og fimmtudaginn 19. janúar eru iPhone námskeið í Nova Lágmúla kl. 12 og kl. 17. Á iPhone námskeiði Nova er m.a. farið yfir helstu stillingar, vinsælar aðgerðir og skemmtileg forrit. Á námskeiðinu færðu einnig tækifæri til að spyrja þeirra spurninga sem brenna á þér.
Það eru allir velkomnir á námskeiðin og þú skráir þig á iphone@nova.is. Námskeiðið er frítt.

Jóhann Valur
Plötusnúður
Ertu í ræktinni?
11. janúar, 2012
Þá er fínt að hafa góðan og fjölbreyttan lagalista í eyrunum til að halda þér við efnið. DJ Nova er búinn að setja inn nýjan lagalista fyrir ræktina á Tónlist.is. Á listanum finnur þú lög eins og Synthia með FM Belfast, Ladyshave með GusGus og Shed Those Tears með Sykur.
Smelltu á myndina til að nálgast lagalistann. Aðgangurinn er ókeypis fyrir viðskiptavini Nova en greitt er fyrir netnotkun. Þú getur hlustað í tölvunni og í Nova farsímanum þínum (3G og WiFi).
Gangi þér vel í ræktinni!




