topsplash.PNG (438699 bytes)

Nova bloggið

Uppstigningardagur: Afgreiðslutími Nova

16. maí 2012 | Þjónusta og verslanir

Þann 17. maí, uppstigningardag, eru verslanir Nova í Kringlunni og Smáralind opnar frá kl. 13 til 18. Á Akureyri er opið frá kl. 13-17. Lokað er í verslunum Nova á Selfossi og í Lágmúla. Þjónustuver Nova er opið frá kl. 10 til 18. 

Hafið það gott :)





Android námskeið!

15. maí 2012 | Markaðsmál, Netið í símann

Miðvikudaginn 16. maí verð ég með Android námskeið í Nova Lágmúla. Á námskeiðinu fer ég yfir helstu stillingar og sýna nokkur vel valin öpp. Ég legg sérstaka áherslu á Samsung Galaxy SII á námskeiðinu en það gagnast þó öllum Android eigendum. Námskeiðið, sem er frítt, hefst kl. 17 og þú skráir þig á android@nova.is. Hlakka til að sjá þig!

Fyrirmyndarfyrirtæki VR: Nova í 4. sæti!

14. maí 2012 | Fjölmiðlar, Starfsmannamál

Föstudaginn síðastliðinn tók Nova á móti viðurkenningu VR sem eitt af Fyrirmyndarfyrirtækjum ársins. Nova var í 4. sæti í flokki fyrirtækja með 50 eða fleiri starfsmenn. Viðurkenningin er afar ánægjuleg í ljósi þess að meðal markmiða Nova er að vera Besti vinnustaður í heimi! Nova þakkar öllu sínu frábæra starfsfólki fyrir viðurkenninguna. 


Pinstagram fyrir Instagram!

11. maí 2012 | Markaðsmál, Netið í símann

Pinstagram er skemmtileg blanda af Instagram og Pinterest sem gerir þér mögulegt að skoða myndirnar þínar og þeirra sem þú fylgir á Instagram í tölvunni. Með Pinstagram getur þú líka skoðað vinsælar myndir og leitað að myndum. Þá getur þú deilt myndunum þínum á Facebook. Skemmtilegur möguleiki í Instagram gleðinni :)

Þú finnur Pinstagram á Pinstagram.co

2 fyrir 1 í keilu og lasertag!

11. maí 2012 | Markaðsmál, Netið í símann

Það er gaman að leika sér! Á föstudögum, laugardögum og sunnudögum í maí fá viðskiptavinir Nova 2 fyrir 1 í lasertag og keilu í Skemmtigarðinum Smáralind. Tilboðið gildir eftir kl. 18 og þeir sem fara í lasertag geta einnig skellt sér í pool. Þú nærð í tilboðið á m.nova.is í farsímanum þínum og færð SMS sent í símann. SMS-ið sýnir þú þegar þú nýtir tilboðið.

Góða skemmtun!  

AppsGoneFree!

10. maí 2012 | Netið í símann

AppsGoneFree er iPhone og iPad app sem hjálpar þér að finna öpp sem eru á tilboði, nánar tiltekið 0 kr., í takmarkaðan tíma. AppsGoneFree er ólíkt sambærilegum öppum að því leyti að það birtir ekki langan lista af öllum þeim öppum sem kosta ekki krónu heldur 5-10 sérvalin öpp af snillingunum sem standa á bakvið appið. Listinn uppfærist daglega og hverju appi fylgir góð útlistun út á hvað það gengur. Kíktu á AppsGoneFree daglega, það er alltaf eitthvað nýtt í boði!

Þú færð AppsGoneFree í App Store

 

iPhone námskeið!

09. maí 2012 | Markaðsmál, Netið í símann

Fimmtudaginn 10. maí eru iPhone námskeið í Nova Lágmúla. Námskeiðin hefjst kl. 12 og 17 og standa yfir í klukkustund. Á námskeiðinu fer ég yfir helstu stillingar, aðgerðir og sýni þér nokkur vel valin öpp. Það kostar ekkert að mæta á iPhone námskeið hjá Nova og það eru allir velkomnir. Þú skráir þig með því að senda póst á iphone@nova.is. Hittumst hress :)



Android námskeið Nova!

08. maí 2012 | Markaðsmál, Netið í símann

Miðvikudaginn 9. maí er Android námskeið í Nova Lágmúla. Á námskeiðinu verður farið yfir helstu stillingar, aðgerðir og öpp. Námskeiðið gagnast öllum Android eigendum en sérstök áhersla er lögð á Samsung Galaxy S II. Námskeiðið, sem er frítt, hefst kl. 12 og er í klukkustund. Þú skráir þig með því að senda póst á android@nova.is. Sjáumst hress!   


2 fyrir 1 tilboð Nova!

07. maí 2012 | Markaðsmál, Netið í símann

Maður er manns gaman. Á m.nova.is í farsímanum þínum finnur þú þessi fínu 2 fyrir 1 tilboð og því algjör óþarfi að gera skemmtilega hluti ein(n).  

Skelltu þér út að borða á Tapas barnum, það er 2 fyrir 1 af Tapasplöttum mánudaga og þriðjudaga í maí. Bíóferð í Smára- og Háskólabíó er líka góð hugmynd, viðskiptavinir Nova fá 2 fyrir 1 á miðvikudögum og fimmtudögum. Þá er golfsumarið komið á fullt og á föstudögum í maí getur þú fengið 2 fyrir 1 af 100 boltum í Básum og smurt ryðgaða sveifluna. Helgarnar í maí má síðan nýta til að fara í keilu eða lasertag í Skemmtigarðinum í Smáralind, tilboðið gildir fös-sun eftir kl. 18. 

Líf og fjör! 

Bejeweled Blitz: paraðu saman gimsteina!

04. maí 2012 | Netið í símann

Bejeweled Blitz er hressandi leikur fyrir iPhone og iPad þar sem þú hefur 60 sekúndur til að para saman þrjá eða fleiri gimsteina til að fá sem flest stig. Leikinn getur þú spilað við sjálfa(n) þig eða vini þína á Facebook. Blitz skýrir sig að mestu leyti sjálfur en ef þú ert í vafa þá getur þú fengið góðar leiðbeiningar í upphafi leiks. Til að gera leikinn enn skemmtilegri þá getur þú bætt ýmsum eiginleikum við hann, t.d. ruglað röðunum upp á nýtt ef þær reynast þér erfiðar eða sprengt upp steina án þess að ná þremur eins gimsteinum. Ef tímapressa fer illa í þig þá getur þú stillt leikinn þannig að þú færð vísbendingu um hvaða gimstein þú átt að hreyfa. Klárlega málið að prófa þennan!

Þú færð Bejeweled Blitz í App Store.

Svipaður leikur fyrir Android farsíma er Jewels Star og til að keppa við tímann þá velur þú arcade mode. Þú nærð í Jewels Star í Google Play



Spurt & svarað Opnunartími Hafðu samband
Þjónusta
Þjónustusvæði
Verðskrá
Spurt og svarað
Verslanir okkar
Nova netsíminn
Brandarar
4G
VIP
Fyrirtækjaþjónusta
Barinn
Barinn
Áfylling
Dótabúðin
Bolir
Verslanir okkar
Netið í símann
iPhone Apps
Android Apps
Nokia Apps
Hvað er Android?
Tónar
Forsíða
Flytjendur
Stóllinn
Yfirlit
Sundurliðun
Áfyllingar
Reikningar
Lykilorð
Vinatónar
Frelsi
Baksviðs
Blogg
Fyrirtækið
Verslanir
Starfsfólk
Laus störf
Hafa samband
Nova verslanir Lágmúla 9, Smáralind, Kringlunni, Akureyri og Selfossi | Þjónustuver 519 1919