iPhone 3GS á 139.900 kr. fyrir viðskiptavini Nova í desember « Nova bloggið


Auglýsingar, Markaðsmál, Símtæki og annar búnaður, Þjónusta og verslanir

Harald Uppfinningamaður

iPhone 3GS á 139.900 kr. fyrir viðskiptavini Nova í desember

24. nóvember, 2009

Nova býður nú nýja iPhone 3GS farsímann á 139.900 kr. fyrir viðskiptavini sína í desember, en fullt verð er 156.900 kr.  iPhone farsímanum fylgir jafnfram 1 GB frí netnotkun á mánuði allt árið 2010 fyrir viðskiptavini í áskrift.  Farsíminn fæst eingöngu í verslun Nova í Lágmúla 9.

iPhone 3GS er í raun lítil nettengd tölva með frábært notendaviðmót og möguleikarnir á netvöfrun, tölvupósti, afþreyingu osfrv. eru endalausir.  iPhone er fyrirmyndin að því sem koma skal því nú keppast aðrir farsímaframleiðendur um allan heim við að komast með tærnar þar sem Apple hefur hælana.

iPhone 3GS kostar sannarlega sitt en mögulega er hægt að verða sér út um þennan farsíma á lægra verði erlendis.  Við gátum því miður ekki fengið símann á lægra verði en erum að bjóða hann á mun lægra verði en aðrir söluaðilar á Íslandi.   Við bjóðum ÖLLUM 3G og 3GS iPhone eigendum sem koma í áskrift eða frelsi til Nova í desember, netið í símann: 1 GB á 0 kr. á mánuði allt árið 2010. Óháð því hvort þeir keyptu símann hjá Nova eða mögulega á betra verði erlendis .

Þetta er það besta sem við getum boðið. Síminn er ólæstur og skuldbinding um viðskipti er engin – það borgar sig að vera hjá Nova og fá 0 kr. Nova í Nova og netið í símann á 0 kr.

ATH. 1 GB á mánuði í 12 mán. gildir í áskrift og frelsi. Fullt verð á Iphone 3GS 16GB  er 156.900 kr. en 139.900 kr. fyrir viðskiptavini Nova í desember.  2ja ára ábyrgð fylgir iPhone símanum.



26 Skilaboð to “iPhone 3GS á 139.900 kr. fyrir viðskiptavini Nova í desember”

  1. Geiri segir:

    herna verður hægt að borga símann a raðgreiðslu ?

  2. Christian Tinner segir:

    Goðan daginn,
    kann ég kaupa iPhone i verslun Akureyri?

    með kveðja

    Christian

  3. Helgi segir:

    Sæll Christian,

    Þú getur skellt þér í Nova verslunina á Akureyri og tekið pöntun hjá honum Helga Steinari verslunarstjóra, við sendum þá farsíman norður um leið og hann tekur við pöntun.

    kv
    Helgi Pjetur
    Nova

  4. Helgi segir:

    Sæll Geiri,

    Því miður verða raðgreiðslu eða greiðsludreifingar ekki boði. A.m.k. ekki til að byrja með. Síminn fæst eingöngu á 139.900 kr. staðgreitt fyrir viðskiptavini Nova í frelsi eða áskrift.

    kv
    Helgi Pjetur
    Nova

  5. Karl Sigtr. segir:

    Hví er hann svona dýr? Þegar hann er á 199$ í USA?

  6. Ólafur keflavik segir:

    daginn

    hver mun sjá um að þjónusta Iphone á Íslandi?

    kv Óli

  7. Snilld! Alveg hreint magnað að þetta skuli loksins verða að möguleika hér á fróni. Verst finnst mér þó að þetta sé gert á „gráu svæði“ eða svo þar sem Ísland er ekki einusinni inni á kortinu hjá Apple. Verðið finnst mér vera aðeins of hátt…

    Engu að síður alveg frábært!

  8. Bjarki segir:

    Hvernig er með m.nova.is verður hægt að nota þá síðu í iPhone. Eða verður gert app fyrir iPhone ??

  9. Helgi segir:

    Sæll Karl,

    Þetta verð sem þú ert að sjá, þ.e.a.s. $199 er m.v. það að þú gerir bindisamning við AT&T uppá 24 mánuði og tækið er læst inná það farsímafyrirtæki. Heildarverð sem þú borgar fyrir tækið og lágmarksþjónustu eftir þessa 24 mánuði verður komin yfir 200 þús kr í lok samingstímans.

    Hjá okkur gerum við enga kröfum á bindingu. Við bjóðum viðskiptavinum okkar ódýrasta verðið á Íslandi og samanburðarhæft við verð í nágrannalöndum.

    kv
    Helgi Pjetur

  10. Arnar segir:

    Hvernig er hægt að bjóða þessa síma á Íslandi þegar við erum ekki á lista Apple yfir þau lönd sem bjóða iPhone? Er þetta í óþökk Apple?

  11. Ragnar segir:

    Sæll

    hvað er stórt minni í þessum síma?

  12. eiki segir:

    ef þú staðgreiðir síman i usa þá komstar hann 86 þús kr islenskar, eða 699 dolllara fyrir 32 gb 3gs.
    er þetta ekki svolítið dýrt 140 þúsund kr og engin raðgreiðsla i bullandi kreppu ?? :)

  13. Sævar Einarsson segir:

    Ef þið viljið fá mig og amk 7 aðra sem ég þekki í viðskipti þurfi þið að bjóða uppá bindisamning líka. Margir sem fara ekki í rassvasan og skutla uppá borðið 139.900 kr,hér er margt fólk að reyna að ná endum saman en er kannski aflögufært um 15.000 í munað á mán og þá er alveg upplagt að bjóða uppá „vaxtalausa“ bindisamninga, ef það er enginn gullrót þá vill kanínan lítið annað.

  14. Helgi segir:

    Sæll Bjarki,

    Stefnt er að því að viðskiptavinir okkar með iPhone geti notað m.nova.is frá og með áramótum.

    kv
    Helgi

  15. Helgi segir:

    Sæll Ragnar,

    iPhone 3GS síminn sem við erum með í sölu hjá okkur er með 16 GB minni.

    kv
    Helgi
    Nova

  16. Helgi Þ segir:

    139.900 eða 156.900 er hlægilega dýrt verð.

    Hvað er fólk að spá???

    frekar vil ég eiga fyrir leigu í 3 MÁNUÐI heldur en að kaupa nýjan síma.

    $699 er líka miklu betra verð. Af hverju svona dýrt hér?

  17. Víkingur segir:

    Ég á iphone 3GS og hann virkar bara mjög vel hér á íslandi. Þetta er besti farsími sem ég hef átt og séð. Rétt er það að hægt er að fá hann ódýrari úti, en það getur verið vesen. Sums staðar er hann uppseldur, annars staðar er búið að loka fyrir að kaupa símann ósamningsbundinn eins og í New York (allavega í júlí), og það þýðir að það á eftir að jailbreaka hann og unlocka hann fyrir önnur símfyrirtæki. Og svo eru þeir alltaf að uppfæra stýrikerfið í símunum sem þýðir að bíða þarf eftir cracki sem gæti tekið mánuði. Ég þurfti að bíða í 3 vikur eftir unlocki.

    Það sem ég sé hagstætt við að versla við Nova er að það er ekkert vesen, síminn crassar ekki ef þú tengir hann við itunes og update-ar óvart og það er tveggja ára ábyrgð. Svo er e-rausnarlegt að bjóða 1 gig á mán frítt. ; p

  18. Kjartan segir:

    Er Síminn ekki að bjóða þennan iPhone á 124.000? Getið þið útvegað 32GB símann, ég hefði áhuga á að kaupa hann ef þið bjóðið betur en Síminn þar sem ég er í viðskiptum við ykkur…

  19. Stefán J. segir:

    samkvaemt apple.com tá kostar tessi sami sími 199$ í USA, sem gera rétt rúmar 25.000kr med 9% soluskatti… hvad réttlaetir tennan heiftarlega verdmun?

    borgar sig nanast frekar ad skjotast ut i goda helgarferd og versla simann en ad kaupa hann á Íslandi…

  20. Páll segir:

    eins og óli þá spyr ég hver sér um að þjónusta Iphone á íslandi?

  21. Buyer segir:

    „Þetta verð sem þú ert að sjá, þ.e.a.s. $199 er m.v. það að þú gerir bindisamning við AT&T uppá 24 mánuði og tækið er læst inná það farsímafyrirtæki.“

    This is not totally true. It is possible to purchase an unlocked Iphone 3GS 32GB if you pay 85.000 isk. 55.000 isk less than in Iceland.

    You can also do it in Italy, paying 699 Eur. ( 127.000 isk) With the advantage of getting the IVA tax deduced, and paying only 109.000 isk for the Iphone 3GS 32GB.

    Nova is offering the Iphone 3gs ONLY 16GB for 139.000 isk = 770 euros= 1110 usa dollars. For that money you can buy 2 IPHONE 3GS 16gb anywhere in the other countries, or an 3GS 32GB for just a little more than the half of what it cost in Iceland.

    I think it is totally unfair to offer a product as if it was AN OFFER and OPPORTUNITY when it is only about a real ROBBERY …

    Icelandic sellers are never going to understand that if they had better prices people would buy IN ICELAND, instead of buying abroad. But they seem not to ever want to learn.

  22. Bragi Þór Jónsson segir:

    Hvernig stendur á því að það er ekki hægt að kaupa símann á raðgreiðslum, léttgreiðslum eða með sambærilegum 12-24 mánaða bindisamningi, eins og tíðkast orðið er annars staðar ?
    Ég (og sjálfsagt fleiri núna) veit að þið eruð að bjóða þennan síma í gegnum Elkó, sem tekur hann inn frá Bretlandi (líkt og Síminn í gegnum O2). Hjá Elkó kostar hann fullu verði 156.995 kr., 139.995 kr. í fríhöfninni þar sem hann ætti í raun að kosta rétt rúm 126 þkr (vsk tekin af 156995 kr.).
    Hverjum dettur í hug að staðgreiða svona tæki í dag á þessu verði hér á Íslandi. Menn kaupa þá frekar erlendis eða af netinu.
    Að sjálfsögðu ætti að vera hægt að kaupa svona tæki á þeim kjörum sem menn telja sig ráða við og þá alla vega upp að 24 mánaða (ábyrgðartíminn) eða 36 mánaða með aukaábyrgð greiðslukortafyrirtækja.

    Bragi Þór

  23. SvennSon segir:

    bróðir minn á heima í kina og hann fær hann á 30 þúsund ólæstann…Hvað Er málið með verðið á þessu Kvikindi

  24. Sævar Einarsson segir:

    Ætli STEF fái gjald af þessum síma ?

  25. Hildur segir:

    en segjum að ég sé í nova, og eigi iphone sem ég keypti ekki hjá ykkur, getið þið þá unlockað hann?

  26. Kafalgona segir:

    подходящий вебсайт http://www.profi71.ru/ – офисы в туле, производство г тула, коммерческая недвижимость в туле, аренда коммерческой недвижимости в туле и многое другое.